Þotuliðið mun ekki sætta sig við þetta

Kæra hefur verið lögð fram á hendur Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli vegna brots á áfengislögum. Kærendur, HBO vín ehf., vilja meina að engin lagaheimild sé fyrir hendi til þess að selja áfengi í Fríhöfninni. 

Snillingar!

Ef dómstóll samþykkir þessa kæru og leggur á lögbann á tollfrjálsa áfengissölu í íslenskum flugvöllum er ljóst að þotuliðið verður brjálað. Opinberir embættismenn og vel borgaðir viðskiptaferðalangar líta á aðgengi að tollfrjálsu áfengi sem nokkurs konar fríðindi eða bónus. Þetta fólk á fulla vínskápa af koníak, vodka og gini sem sauðsvartur almúginn getur ekki leyft sér að kaupa á venjulegu verði í tolluðum vínbúðunum.

Um leið er þotuliðið á því að áfengi til almennings eigi að vera dýrt og óaðgengilegt - annars fara allir sér jú að voða, ekki satt?

Ef fríhafnaráfengi hættir að vera í boði mun þotuliðið ekki sætta sig við það. Áfengislöggjöfinni verður breytt á slíkum hraða og í slíkri fjarveru umræðu á Alþingi að furðu sætir. Löggjöfinni verður ekki breytt til rýmkunar á sölufyrirkomulagi áfengis heldur eingöngu til að koma til móts við þotuliðið svo það geti áfram haft aðgang að tollfrjálsu áfengi. Vínbúðir ríkisvaldsins munu standa óhreyfðar á einokunrstalli sínum utan flugvallanna.  

Þetta verður spennandi mál, en um leið svo fyrirsjáanlegt. 


mbl.is Bannað að selja áfengi í Fríhöfninni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Já mjög merkilegt.  Ég hef oft velt því fyrir mér hvort flugliðar séu ekki hlutfallslega fleiri á Vogi en aðrar starfsstéttir.  Það væri þá í samræmi við spár hörmunga spámanna.   

Hrólfur Þ Hraundal, 4.3.2016 kl. 08:05

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Nú eða fólki með vel yfir meðaltekjur sem ferðast að jafnaði meira en annað fólk og kemur klyfjað út úr fríhöfninni eftir hverja ferð (fyrir utan allt sem var drukkið á meðan á ferðalaginu stóð). Það telur sig samt sennilega ekki eiga við vanda að stríða þótt það stúti vínflösku á dag því vín er jú ekki áfengi heldur lífsstíll. 

Geir Ágústsson, 4.3.2016 kl. 10:23

3 Smámynd: Hvumpinn

Er þetta ekki bara fúll vínsali sem hefur ekki fengið vínin sín seld í Fríhöfninni?  Fyrirtækið heitir HOB-vín.

Hvumpinn, 4.3.2016 kl. 15:03

4 Smámynd: Hörður Halldórsson

Fólk  sem er með lægri tekjur fer sjaldnar um fríhöfnina eðlilega. Mætti ekki gefa þeim sem ferðast sjaldan tækifæri á að versla í fríhöfnini á t.d. einu sinni ári?'Án gríns þá er þetta  mismununun á tekjuhópum . ÁTVR/ Vínbúðin gæti verið þarna  fyrir utan tollhliðið og selt á sama verði og annars staðar.

Hörður Halldórsson, 4.3.2016 kl. 15:43

5 Smámynd: Kolbrún Hilmars

Það skiptir nákvæmlega engu máli hvort vínsala verður lögð niður í Fríhöfninni eða ekki.  Ferðalangar á útleið kaupa þá bara sitt vín í vínbúðum á áfangastað - sem er yfirleitt á svipuðu verði, og ferðalangar á heimleið í fríhöfnum brottfararstaðar. Erlendar fríhafnir munu aðeins hagnast á sölubanni hér.
Fríhafnarsalan er einfaldlega þjónusta við ferðalanga, ekki annað.

Kolbrún Hilmars, 4.3.2016 kl. 15:57

6 Smámynd: Steinarr Kr.

Ef dómsstólar komast að því að þetta sé í lagi, sé ég enga fyrirstöðu fyrir menn að opna einkarekna vínbúð t.d. í Kringlunni.

Steinarr Kr. , 6.3.2016 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband