Þegar börn festast í kerfinu

Þegar löggjöf er mjög nákvæm og á að ná yfir allt hugsanlegt og óhugsanlegt skapast tvö vandamál:

- Sveigjanleiki fólks til að gera samninga sín á milli er í raun kæfður

- Ef eitthvað fellur utan lagarammans festist það á eilífu gráu svæði

Það mætti segja að nákvæm löggjöf geri allt sem ekki er sérstaklega tilgreint sem löglegt - ólöglegt!

Þetta er breyting frá því sem áður var þegar almenn lög voru skrifuð og nákvæm túlkun þeirra leyst fyrir dómstólum. Nú þykist löggjafinn geta séð allt fyrir með ófyrirséðum afleiðingum.

Sem dæmi má nefna glóperuna sem Evrópusambandið bannaði og Íslendingar töldu sig þurfa að banna líka. Nú virðist vera að koma í ljós að glóperan - með svolítilli viðbót - er í raun miklu skilvirkari ljósgjafi en hinar svokölluðu sparperur. Vandamálið er hins vegar að nú standa lögin (meðal annars) í veg fyrir hraðri útbreiðslu tækninnar. Eða eins og segir á einum stað:

Why should governments be in the business of picking right and wrong technologies at all?

Þetta er spurning sem fáir geta svarað svo vel sé. Það er þá helst hægt að útskýra málið með því að velta því fyrir sér hvort stuðningsmenn opinberra boða og banna séu einfaldlega hræddir við sjálfa sig og hæfileikann til að prófa sig áfram, gera mistök og læra af reynslunni. 

Er þetta fólkið sem á að ráða?


mbl.is Hagir barns breyta ekki konu í móður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að á ensku sé þetta kallað ´´totalitarianism´´.

Refsarinn (IP-tala skráð) 3.3.2016 kl. 13:02

2 identicon

Það eru augljós rök fyrir því að stjórnvöld skipti sér af slíkum málum ef með því er hægt að spara mikla orku sem er víða af skornum skammti.

Þannig er ekki bara komið í veg fyrir óþarfa sóun sem getur leitt til alvarlegs orkuskorts heldur mun það að öðru jöfnu leiða til lækkunar á orkuverði. 

Ásmundur (IP-tala skráð) 3.3.2016 kl. 22:27

3 Smámynd: Geir Ágústsson

Ásmundur,

Má þá gera ráð fyrir að ESB snúi við banni sínu á glóperum ef vísindamönnum MIT tekst að gera þær hagkvæmari en svokallaðar sparperur? Eru það skilaboð til fjárfesta svo þeim finnist óhætt að hætta fé sínu?

Geir Ágústsson, 4.3.2016 kl. 04:41

4 identicon

Að sjálfsögðu má gera ráð fyrir því. ESB hefur hagsmuni almennings í fyrirrúmi frekar en hagsmuni fjárfesta öfugt við Sjálfstæðisflokkinn á Íslandi.

Ásmundur (IP-tala skráð) 4.3.2016 kl. 13:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband