Höftin eru pólitísk brella

Samfylkingin vill hafa krónuna í höftum til að láta evruna líta þeim mun betur út.

Íslendingar þurftu að aðlaga sig að breyttum kaupmætti krónunnar rétt eftir árið 2000 þegar fastgengisstefnunni var sleppt. Þá tók krónan dýfu, allt innflutt hækkaði í verði, allt útflutt varð að miklu fleiri krónum en áður, og eftir tvö eða þrjú misseri hafði rykið sest. 

Íslenska krónan hefði að öllu jöfnu átt að fá að taka út svipaða aðlögun eftir hrunið. En hún fékk það ekki. Það sem í upphafi var talin (af mörgum) vera efnahagsleg en jafnframt tímabundin nauðsyn varð svo að pólitískri brellu og varanlegu fullnægingarmeðal fyrir þá sem tilbiðja opinbera haftastefnu og ríkismiðstýringu. 

Samfylkingarráðherrar munu halda áfram að tala krónuna niður og evruna upp og berjast hart fyrir því að haftastefnunni verði haldið áfram, sama hvað tautar og raular. Seðlabanki Íslands hefur fengið þau pólitísku fyrirmæli að viðhalda höftunum til a.m.k. ársins 2013 þegar Samfylkingin verður í seinasta lagi kosin út í hafsauga. Öllum árum er róið að því að sópa Íslandi sem lengst í átt að Brussel á meðan.

Þetta sáu margir fyrir, og þetta er að rætast.


mbl.is Raunsætt að horfa á krónu í höftum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hörmung að hafa þennan óþjóða flokk Samfylkinguna við völd og svona líka angurgapa og ESB aftaníossa eins og Árna Pál sem gera helst ekkert nema hann geti skaðað þjóð sína sem mest alltaf þegar hann hefur minnsta færi á.

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 5.10.2011 kl. 14:41

2 identicon

Hann Eeinnig að við fengjum Evruna gefins við inngöngu í ESB. Þeir sem hafa eitthvað vit á því hvernig lífið gengur fyrir sig vita að það fæst ekkert gefins. Við höfum ekkert að gera þarna inn og við höfum einnig ekki efni á því, nema að því gefnu að við tökum á okkur enn meiri skattahækkanir og þvíumlíkt til að standa straum af þeim aurum árlega sem munu fara í það að vera þarna inni plús einhverjar fleiri krónur í að bjarga gjaldþrota þjóðum í sambandinu. krónan var og er ennþá það tæki sem hefur gert okku kleyft að lifa af erfiðar aðstæður. það væri komið annað hrun ef gjaldmiðillinn væri fastur.

Þórarinn (IP-tala skráð) 5.10.2011 kl. 14:43

3 identicon

Þessi ríkisstjórn er mjög hættuleg þar sem að hún lamar uppbyggingu og framþróun sem síðan veldur því aftur að raungengi fellur og höggið verður meira, þ.e.a.s. fella þarf gengið meira en því sem svarar höftum.

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 5.10.2011 kl. 19:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband