Önnum kafinn við eitthvað sem skiptir minna máli

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra gat ekki þegið boð Evrópuráðsins í Strassborg um að ávarpa ráðið vegna þess að hann var önnum kafinn við að bregðast við aðstæðum hér heima í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Icesave.

 

Starfandi en óstarfhæfur fjármálaherra landsins er kominn í bullandi þversögn.

Í stað þess að sinna einhverju mikilvægasta verkefni stjórnvalda þessa dagana (að útskýra fyrir útlendingum hvers vegna Ísland er ekki sokkið og mun ekki sökkva í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar), þá er Steingrímur J. "önnum kafinn" við eitthvað allt annað.Steingrímur J. - þiggjandi

Steingrímur var því upptekinn við eitthvað sem skiptir minna máli en mikilvægasta verkefni hans: Að útskýra af hverju fjarvera Icesave-klafans mun ekki hafa neikvæð áhrif á íslenskt hagkerfi (og hluti eins og "lánshæfi" þess).

Starfandi en óstarfhæfur fjármálaráðherra landsins þakkar eflaust í hljóði fyrir að geta bráðum lagst í helgan stein og á feitan lífeyri eftir þetta kjörtímabil, hvenær sem því nú lýkur. 


mbl.is Var önnum kafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þann eina feita sem hann fær á næstunni verður böll í görnina eftir að búið verður að dæma hann í fangelsi fyrir svik við þjóðina þar sem landsdómur mun fá hann til meðferðar strax og spilaborg hans og Jóhrannars hrynur.

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 12.4.2011 kl. 21:03

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Hvaða lög hefur Steingrímur brotið?

Það er ekki ólöglegt að skipta í sífellu um skoðun, tala í kross og þversögnum, vinna í leynd, neita að svara fjölmiðlum, segja eitthvað villandi, afvegaleiða, mismuna og svíkja loforð. Allt þetta er Steingrímur "sekur" um. En hvaða lög hefur hann brotið?

Geir Ágústsson, 13.4.2011 kl. 07:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband