Í kjölfar talningar

Kjörstjórn býst við að ljúka talningu á morgun. Það er ágætt. Þá er það sjónarspil búið.

Í kjölfarið gæti verið athyglisvert að gera kjörseðlana að opinberum gögnum, t.d. með því að birta öll þau gögn og gröf sem talningarvélarnar spýta út úr sér. Menn gætu þá leikið sér að því að finna eigin uppröðun og leika sér með atkvæðin og sjá þannig hvað eru margir kjósendur á bak við hvern meðlim stjórnlagaþings, hversu margir fengu mörg atkvæði en duttu samt út vegna talningarreglana og fleira í þeim dúr. Og síðast en ekki síst: Sjá hvernig stjórnlagaþing hefði verið samsett ef ekki hefði komið til kynjajöfnunar.

Þannig mætti fá mikla vitneskju út úr þessum kosningum og þar með einhvern örlítinn tilgang með allri þessari rándýru æfingu í ábyrgðarflótta stjórnmálamanna. 


mbl.is 36,77% kosningaþátttaka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jóhanna skilur ekki hvað hún er orðin óvinsæl, né hversu verðskuldaðar óvinsældir hennar eru þegar hún hefur látið leiða sig um eins og sauð.

Ef Jóhanna hefði struntaðð í lýðræðið og gefið skít í það, eins og í Icesave kosningunum, þegar hún sagðist bara ætla að skrópa á svipinn eins og bólugrafin gelgja með tyggjó, og þetta væri bara rugl og fólk ætti ekkert að mæta..........þá hefði verið met kosningaþáttta í þessa kosningu, afþví þjóðin vantreystir henni svo rosalega hún gerir alltaf öfugt við það sem hún segir.

Enda óhreint mjöl í pokahorni þessari kosninga. Skrattinn segir þér aldrei að leika einhvers staðar nema hann ætli að reyna að leiða þig í gildru. Hvet þá sem geta til að hafa augun úti varðandi allt sem viðkemur þessu stjórnlagaþingi...

Nú er komið nóg (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 15:54

2 identicon

Tel að ástæðan fyrir lélegri þátttöku sé einfaldlega sú að stór hluti landsmanna er sannfærður um stjórnlagaþing sé einungis pólítískt samsæri. Með því slær ríkisstjórnin þrjár flugur í einu höggi:

Fyrsta flugan: Láta líta út sem svo, að ólýðræðislegasta ríkisstjórn í sögu landsins, sem mest allra hefur brotið á bak aftur eigin hugsjónir og kosningaloforð, og staðið fyrir mesta valdaráni af þjóðinni í manna minnum, sé einhver talsmaður "umbóta" og "breytinga" sem vilji færa "fólkinu", sem hún hefur svikið, arðrænt og hunsað "vald." Blekkja lýðinni og slá ryki í augu hans.

Önnur flugan: Losna við forsetan með að leggja áherslu á að gera "breytingar" á forsetaembættinu, með öðrum orðum, gera forsetan, eina talsmann lýðræðis sem eftir er í þessu landi, fyrir utan kannski Gnarrinn, ónýtan og óvirkan og með öllu valdalausan. Þá stendur enginn eftir í vegi fyrir þeim þegar þau vilja troða Icesave, ESB, forréttindum banka og stórfyrirtækja, AGS etc kjaftæðinu upp á þjóðina, þjóðin hefur þá engan að skjóta máli sínu til og stendur ein síns liðs.

Þriðja flugan: Losna við kirkjuna. Forsætisráðherra hefur lýst því yfir hún hafi margíhugað úrsögn úr Þjóðkirkjunni, Össur er bróðir draugavinakallsins fræga og nú hafa þessir draugavinir og trúleysingjar tekið sig saman til að reka kirkjuna, spara smá pening og auðvelda stórlega Islamovæðinguna þegar við göngum í ESB-stan Islamska ríkið verðandi, ef barneignamál fara ekki að breytast, sem ekki er útlit fyrir, þegar óheftur Islamo innflutningur mun skella hér á (nema við forðumst ESB)

 Þjóðin kaus ekki afþví það var um lítið að kjósa nema málpípur og talsmenn ríkisstjórnarinnar. Og afþví hún sér í gegnum blöff og valdaránstilraunir í sauðargærum.

NÚ ER KOMIÐ NÓG AF GERFILAUSNUM ! ÞJÓÐIN LÆTUR EKKI HAFA SIG AÐ FÍFLI FRAMAR! NÚ ER KOMINN TÍMI Á ALVÖRU BYLTINGU!

 PS: Ég lét mig samt hafa það að fara og kjósa. Leið bara eins og manni sem er hafður að fífli eftir á að láta hafa mig út í skrípaleikinn.

Íslenska Andspyrnuhreyfingin (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 16:01

3 identicon

Kynjajöfnunin er enn eitt trikkið á vegum ríkisstjórnarinnar. Það er mikið af góðvinkonum Jóhönnu í framboði...svo einfalt er það nú. Það hefði verið einhvers konar "kynþáttajöfnun" ef margir Samfylkingarmenn frá Ghana hefðu verið í framboði, og "stéttajöfnun" ef væri ekki fyrir það að lágstéttin vill frekar heiðarlega óvild frá hægri mönnum, en fagurgala og lygar frá vinstrimönnum. Betri maðurinn sem aldrei heilsar, en sá sem þykist vera vinur þinn en lítur niður á þig. Þannig slær hjarta íslensku efnahagslegu lágstéttarinnar sem x-ar við D, þó hún sé innst inni vinstrisinnuð. Það er afþví Íslendingar eru stórmerkileg þjóð, sem lætur ekki koma fram við sig eins og hunda. Það er með fólkinu úti á landi og sjómönnum sem hin sanna íslenska menning á helst rætur, ekki meðal einhverra fávita með doktorspróf í kerfisfræði sem aldrei lesa heimsbókmenntirnar og halda þeir séu "menntaðir", en eru mun minna menntaðir en langafi sinn sem aldrei gekk í skóla en orti sín eigin ljóð. Guð blessi hina sönnu og fögru íslensku þjóð og verndi fyrir föðurlandssvikurum og afætum og vampírum.

http://www.utanthingsstjorn.is (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 16:14

4 identicon

"Vinstri" elítan, það er "hægri hræsnarar" sem þykjast vera eitthvað annað en gamla-veika-fátæka-fólks handrukkararnir sem þeir eru, sem skreyta sig með stolnum fjöðrum jafnaðarstefnunnar en sína sitt sanna eðli í verki, hefur eignast ævarandi óvild íslensku efnahagslegu lágstéttanna, stórs hluta lægri millistéttarinnar, og um leið hinnar sönnu íslensku háelítu, sem er til og gjörólík þessum páfagaukslærdómslærðu snobbhausum með minnimáttarkenndina sem skipa hina nýju íslensku "millistétt"; í andlegri merkingu orðsins "millistétt", það er að segja "smáborgari". Sú elíta fyrirfinnst í öllum stéttum, hæst sem lægst, og hennar verður að leiða þjóðina og glæða forna logan þegar framm í sækir. Fuglinn Fönix lifir!

http://www.utanthingsstjorn.is (IP-tala skráð) 28.11.2010 kl. 16:18

5 Smámynd: Steinarr Kr.

Skemmtileg pæling hjá þér, en verður ekki, því svona talnaleikir koma stjórnvöldum ekki vel og verða því ekki birtir.

Steinarr Kr. , 28.11.2010 kl. 17:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband