Ákvörðun Kínverja mun hafa mikil áhrif á mjög margt

Þeir sem vilja vita meira um afleiðingar af ákvörðun Kínverja um að leysa gjaldmiðil sinn örlítið meira úr viðjum bandaríska dollarans er bent á þetta myndband, þá sérstaklega seinustu 2-3 mínúturnar. Maðurinn sem sannarlega sá hrunið fyrir, og er að sjá fyrir afleiðingar aðgerða stjórnvalda á Vesturlöndum í dag, er maður sem ber að taka mark á.

Helstu punktar:

  • Kaupmáttur kínverskra neytenda batnar nú með styrkingu gjaldmiðils þeirra (stöðvun á rýrnun kaupmáttar hans vegna peningaprentunar til að halda í við bandaríska dollarann)
  • Kínverjar byrja að kaupa meira. Þetta mun koma fram í hækkun verðlags á ýmissi hrávöru (olíu, landbúnaðarvörum) og t.d. gulli
  • Eftirspurn Kínverja eftir skuldabréfum bandaríska seðlabankans minnkar og aðgengi Bandaríkjamanna að lánsfé versnar sem mun neyða bandarísk yfirvöld til að stíga á útgjaldabremsuna eða gefa peningaprentunarvaldinu lausan tauminn með tilheyrandi hruni á bandaríska dollaranum

Þá vitum við það.


mbl.is Verðhækkun á hráolíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband