Jóhanna neitar að sjá sig á ensku

Leyfi mér að leggja eitt mjög svo ómálefnalegt innlegg í "umræðuna" hér:

Jóhanna svarar ekki neinu nema í samskiptum sem fara fram á íslensku. Hún fer hvorki á mikilvæga ráðherrafundi erlendis á vegum stofnana sem Ísland er aðili að, eða svarar erlendum blaðamönnum.

Hinir hollensku sparifjáreigendur vita þetta kannski ekki. Kannski það útskýri bæði ákafa þeirra til lögsóknar í dag, og opinská ummæli þeirra um hugsanlega lögsókn.


mbl.is Kæra Ísland vegna Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jóhanna er mjög rög við að tala ensku og það litla sem ég hef heyrt af henni er slakt. Mér finnst það mjög skrítið þar sem hún er jú fyrrverandi flugfreyja og ég hélt að þeir ættu að kunna a.m.k. 3 tungumál. Getur Geir Haarde ekki verið túlkurinn hennar? Hann var nú ansi misjafn í ýmsu en fjandi góður í ensku kallinn...

En án gríns þá er þetta slæmt mál, Jóhanna þarf að tala fyrir orðspori Íslands og ég myndi telja það best ef forsætisráðherra þessa lands gæti tjáð sig sjálfur á ensku.

Jon Hr (IP-tala skráð) 30.4.2009 kl. 22:44

2 Smámynd: Sigurður Þórðarson

Jónanna er með lausn ´þessu máli, sömu lausn og í öllum öðrum málum þ.e. að ganga í ESB.

Sigurður Þórðarson, 1.5.2009 kl. 06:45

3 Smámynd: Kristbjörn Árnason

  • Ég sé ekki hvað meint tungumálakunnátta ráðherrans komi þessu máli við.  Þetta er auðvitað' bara mjög hallærislegur leikur og lýsir bara vissum hroka.
  • Ég met ekki hæfileika Jóhönnu eftir því hvort hún talar mikla eða litla ensku. Kynslóð okkar Jóhönnu talar almennt ekkert sérstaklega góða ensku, því það var ekki lögð nein sérstök áhersla á það, að kenna börnum það tungumál þegar okkar kynslóð var í skóla
  • Það hefur ekkert með greind að gera hvort hún talar ensku eða ekki. 
  • Það er mjög mikilvægt að íslenskir ráðamenn séu alltaf með túlka í samskiptum við erlenda aðila, er þá sama hversu miklir tungumálamenn ráðherrar annars eru.
  • Ráðmenn frá bandaríkjunum og t.d. frá Bretlandi neita að tala annað tungumál en ensku.
  • Er það e.t.v. vegna þess að þeir ráði ekki við að tala önnur tungumál? Þeir komast einfaldlega upp með það.
  • Jafnvel ráðamenn frá þessum ríkjum hafa með sér túlka í erlendum samskiptum þó þeir telji sig nota móðurmál sitt í erlendum samskiptum
  • Það hefði t.d. komið sér vel að Árni Matt. hefði haft með sér túlk í samræðum sínum við Darling

Kristbjörn Árnason, 1.5.2009 kl. 07:54

4 Smámynd: Einar Karl

Og hvað ætti Jóhanna að segja við hollensku sparifjáreigendurna?

Einar Karl, 1.5.2009 kl. 08:11

5 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Má bjóða ykkur nýbakaðar kleinur?

Kristbjörn Árnason, 1.5.2009 kl. 10:04

6 identicon

Og hvad med thad?   Mér finnst ekki skipta nokkru máli hvort besti stjórnmálamadur landsins geti tjád sig á erlendu tungumáli eda ekki.

Thú aettir ad skammast thín fyrir thannan bjánalega pistill thinn. FUSS OG SVEI

Hrottalegt (IP-tala skráð) 1.5.2009 kl. 11:47

7 Smámynd: Geir Ágústsson

Ég þakka Kristbirni fyrir að minna mig á að Jóhanna er búin að sitja á þingi í yfir 3 áratugi, og er núna forsætisráðherraefni ríkisstjórnar "endurnýjunar.

Annars kemur þessi lögsókn örugglega tungumálakunnáttu Jóhönnu við. Það var meira skot, og meira að segja yfirlýst ómálefnalegt skot af minni hálfu.

Geir Ágústsson, 2.5.2009 kl. 09:42

8 Smámynd: Geir Ágústsson

"...öruggulega EKKERT við" ...vildi ég sagt hafa.

Geir Ágústsson, 2.5.2009 kl. 09:43

9 Smámynd: Kristbjörn Árnason

Ég þakka Geir, þessi sending var auðvitað send til gamans. En það leynist í henni smá broddur.

Kristbjörn Árnason, 2.5.2009 kl. 12:14

10 Smámynd: Geir Ágústsson

Kristbjörn,

Þakka innlegg þitt.

Túlka-skortur er arla ástæða til þess að sleppa því að geta talað við helstu ráðamenn heims um aðstæður á Íslandi, og væntanlegt gjaldþrot Íslands. Ef eitthvað þá er offramboð á túlkum á Íslandi, enda öll fyrirtæki á Íslandi að fara á hausinn, og búin að senda túlka sína á atvinnuleysisbætur.

Geir Ágústsson, 2.5.2009 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband