Óþolandi að vera í stjórnarandstöðu?

Margir þingmenn og flokksmenn flokka sem eru ekki stjórnarmyndunarviðræðum hafa mikla tjáningarþörf þessa dagana. 

Gripið er til furðulegra myndlíkinga og samsæriskenninga. Menn þenja sig á samfélagsmiðlunum. Víða er allt að verða vitlaust!

Það er eins og margir þeir sem sjá fram á að sitja í stjórnarandstöðu vilji alls ekki það hlutskipti. Hefðbundin þingstörf eru greinilega ekki nógu heillandi. Nei, þetta fólk vill ráða. Það vill vera í klíkunni sem skipar fyrir, en ekki í hinni sem þarf að verjast. 

Ríkisstjórnarsamstarf Sjálfstæðisflokks, VG og Framsóknar er vissulega engin óskastaða fyrir neinn. Það er samt óþarfi að gera á sig af pirringi. 


mbl.is „Mynda samsæri gegn kjósendum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir sem vilja kanna aðra möguleika ættu að íhuga

tilhugsunina um þá gæti Helga Vala orðið dómsmálaráðherra

Grímur (IP-tala skráð) 19.11.2017 kl. 16:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband