Leggjum niður Seðlabanka Íslands

Það er vandasamt verk að sitja í stól alræðisherrans sem reynir að stilla saman hagkerfi, samfélag, gengi gjaldmiðils, inn- og útflutning, verðlagsþróun, kaupmátt, vexti, sparnað, fjárfestingu, fjármál ríkisins, kjarasamninga, fjárfestingar, skuldsetningu, tilhneigingu fólks til að spara eða eyða og ákvarðanir loforðaglaðra stjórnmálamanna.

Það er í raun ekki hægt.

Á frjálsum markaði er það verðlagið sem sendir skilaboð til hinna og þessara um hvað eigi að gera. Ef bananar hækka í verði, t.d. vegna uppskerubrests, getur fólk keypt epli í staðinn á meðan þeir sem geta ekki án banana verið borga uppsett verð og fá sitt. Ef skattar á vinnu bifvélavirkja hækka og gera þá óviðráðanlega dýra reynir fólk að kaupa þjónustu handlaginna frænda í staðinn. 

Í Sovétríkjunum kvörtuðu opinberir embættismenn yfir álaginu sem fylgdi því að ákveða verð á þúsundum mismunandi hluta. Þeir reyndu sitt besta. Alltaf mynduðust samt biðraðir, skortur var á öllu nema vodka (enda verðlagður hátt) og enginn átti neitt.

Í Seðlabanka Íslands finnst mönnum vera mikið að gera hjá sér að ákveða verð á peningum, sem hefur um leið áhrif á verð á öllu öðru. Alltaf þarf að vera á varðbergi að grípa inn í, kaupa og selja gjaldeyri, setja reglur, stunda eftirlit og lægja óánægjuraddir þeirra sem vilja hærri eða lægri vexti.

Ríkið á ekki að standa í framleiðslu og verðlagningu á peningum frekar en sementi og ullarsokkum. Það á að gefa notkun og framleiðslu peninga frjálsa. Peningar eiga að keppa í trausti en ekki því hversu mikið bolmagn skattgreiðendur hafa til að bjarga málum þegar allt er komið í bál og brand.

Í Zimbabwe fyrir nokkrum árum geisaði verðbólga upp á mörgum hundruð prósent á ári. Þar gáfust menn upp á því að gefa út gjaldmiðla og þar notar almenningur og fyrirtæki nú marga mismunandi gjaldmiðla. Af þessu mál læra.

Er eftir einhverju að bíða?


mbl.is Minni hagvöxtur og meiri verðbólga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband