Neyslustýring fríhafnarfólksins

Á Íslandi er áfengi skattlagt í himinhæðir, nema í fríhöfnum landsins. Þetta kemur sér vel fyrir þá sem tala hæst um að skattar á áfengi á Íslandi þurfi að vera háir svo fólk fari sér ekki að voða. Þetta er fólkið sem hefur efni á því að ferðast oft eða þarf að ferðast oft á vegum vinnunnar. Þetta fólk á stútfulla vínskápa með koníaki, vodka og gini og munar ekkert um að kaupa sér bjór á uppsprengdu verði.

Aðrir sitja eftir - lágtekjufólkið, ungt fólk og rónanir. Þetta lið er mjólkað eins og hlekkjaðar beljur eða neytt til að leggja sér heimabrugg til munns.


mbl.is Áfengisskatturinn hækkar um áramót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Það einstaka og skemmtilegasta við Íslenska stjórnmálamenn er að þeir hafa betri laun en landinn.  Þeir hafa því efni á flugferðum og á stundum eru þeir svo heppnir að fá ókeypis flugferðir sem alltaf eiga upphaf og endir í fríhöfninni. íslendingar eru uppaldir við það að útlent er merkilegra en annað, en brennivín þó sínu merkilegra enn allt annað. 

Það er sniðugt á Íslandi, að brennivín annað en ríkisbrennivín er bannað og þar með er mest spennandi að drekka brennivín í útlöndum og fá í þokkabót að ráfa um fríhafnir, alveg eins og þingmennirnir. Þetta kostar allt saman, en það er skemmtilegra að kosta brennivínið með ferðalagi heldur en bara beint í ríkiskassann.  

En góð von er að nú taki sig til snjallir drengir með ráðum gamalla sem kunna að láta gerlanna vinna fyrir sig sem og gamlir sérfræðingar í eftirmeðferðum og þá verður hér til iðnaður eins og í Finnlandi,selt á þriggja lítra brúsum og heitir Finnavatn. 

Markaðssvæðið er Finnland norður Noregur og norður Svíþjóð.  Og Hvað ættu Alþingismenn og ráðherrar að geta sagt sem stjórna verðlagi á þessum vorum og kaupinu sínu líka.       

Hrólfur Þ Hraundal, 9.12.2016 kl. 22:48

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Fríhöfnin er yndislegt svæði þar sem öllum líður eins og þeir séu komnir á friðað svæði. Fríhöfnin er eins og frí frá stjórnmálamönnum, rétt eins og sumarfrí þingmanna og jólafrí. Íslendingar rífast ekki í fríhöfninni um stjórnmál eða skattheimtu því hvorugt er til staðar að ráði í fríhöfninni.

Vonandi tekst að brjóta niður veggi fríhafnarinnar og gera allt Ísland að einni fríhöfn. 

Geir Ágústsson, 10.12.2016 kl. 19:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband