Ríkisstjórninni tekst að berjast fyrir eigin stefnumáli

Loksins virðist ríkisstjórninni, í krafti þingmeirihluta, hafa tekist að koma eigin stefnumáli alla leið í höfn. Ekki er hægt að segja það um mörg önnur af stefnumálum hennar. Þetta virðist samt ætla að hafast.

Í flestum öðrum málum virðist ríkisstjórnin bara hafa tekið upp stefnumál fráfarandi ríkisstjórnar og keyrt áfram á þeim. Það er alveg mögnuð frammistaða, eða frammistöðuleysi réttara sagt. Samt virðist hún ekki geta staðið af sér árásir þingminnihlutans og vinstrifjölmiðlanna. Hún virðist ekki geta beðist afsökunar nægilega hratt til að friða vinstrimennina og sannfæra þá um að stefnumálum vinstrimanna sé alveg ágætlega borgið hjá núverandi ríkisstjórn. 

Með þessu áframhaldi er sennilega lítil hætta á að núverandi ríkisstjórnarflokkar haldi þingmeirihluta sínum eftir næstu kosningar. Til hvers að kjósa Sjálfstæðis- og Framsóknarflokk til að berjast fyrir stefnumálum Samfylkingar og VG þegar Samfylkingin og VG segjast ætla að gera það sama? Spyr sá sem ekki veit. 


mbl.is „Málinu lokið af hálfu ESB“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er skelfilegasta ríkisstjórn allra tíma. Nú stendur til að gefa þjóðareign (makrílkvóta) upp á 150-170 milljarða til ríkasta fólks landsins.

Allar aðgerðir ríkisstjórnarinnar hafa annaðhvort tekið mið af því að auka svigrúm til spillingar eða færa fé frá hinum verr settu til hinna best settu. Að þetta skuli vera hægt í landi sem kennir sig við lýðræði er með ólíkindum.

Ég ætla mér ekki þá dul að telja upp öll afglöp þessarar ríkisstjórnar heldur aðeins það sem ég man í svipinn.

Aukið svigrúm til spillingar felst í breytingum á kjöri í stjórn RÚV, breytingum á vali hæstaréttardómara, vali á seðlabankastjórum og fjölgun þeirra í þrjá, og breytingar á náttúrverndarlögum svo að eitthvað sé nefnt.

Allt er þetta mikil afturför og öfugþróun miðað við það sem hefur verið að gerast i raunverulegum lýðræðisríkjum.

Tekjuskattslækkanir hafa engar verið til hinna lægst launuðu og langmestar til hinna hæst launuðu. Virðisaukaskattsbreytingar rýra kjör hinna verst settu með hærri matarskatti en bæta kjör hinna best settu með afnámi vörugjalda á dýrum heimilistækjum.

Ríkasta fólki landsins voru færðar næstum 10 milljarðar með afnámi auðlegðarskatts.

Stór hluti lífeyrisþega, þeir sem verra voru settir, fengu enga búbót með greiðslu grunnlífeyris til allra. Þeir fengu áður grunnlífeyri og fengu því enga hækkun.

Jafnvel lánalækkunin var tilfærsla frá hinum verr settu til hinna betur settu. Mikill meirihluti upphæðarinnar fór til einstaklinga sem höfðu hagnast á sínu láni eða þurftu ekki á neinni fyrirgreiðslu að halda. Þeir sem hægt var að réttlæta að fengju lækkun voru tiltölulega mjög fáir.

Leigjendur fengu sama sem enga fyrirgreiðslu. 400 milljónir til leigjenda á móti yfir 100 milljörðum til íbúðareigenda. Þannig varð gífurleg tilfærsla fjár frá hinum tekjuminnstu til hinna tekjumestu og frá hinum eignalausu til íbúðareigenda.

Þetta er kapítalismi andskotans. Tilfærsla fjár milli tekju- og eignahópa hlýtur allaf að vera frá hinum betur settu til hinna verr settu ef eitthvað vit á að vera í henni.

Til að kóróna þennan hrylling reynir þessi hörmulega stjórn nú að slíta aðildarviðræðum við ESB þvert gegn vilja meirihluta þjóðarinnar og eigin loforðum án þess að nokkur önnur lausn en ESB og evra séu í sjónmáli.

Ég er of kurteis maður til að velja þessum kónum þau orð sem best eiga við þá.

Ásmundur (IP-tala skráð) 28.4.2015 kl. 22:22

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Ásmundur,

Við verðum vonandi fljótlega sammála að ósætti okkar við ríkisstjórnina kemur úr tveimur gjörólíkum áttum. Á mér finnst hún vera of vinstrisinnuð og að mörgu leyti algjört afrit af fráfarandi ríkisstjórn þá kallar þú eftir meiri sósíalisma.

Enda er það kannski helsti gallinn við ríkisstjórnina: Hún er hvorki né, bæði og, og svona einhvern veginn allt og ekkert. Henni væri nær að taka upp stefnumál og berjast af hörku fyrir þeim frekar en að hlaupa með stefnu sína í felur þegar hljóðnemar fjölmiðlamanna birtast. 

Geir Ágústsson, 29.4.2015 kl. 11:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband