Óáreiđanlegur varnagli

"Varnagli" í formi "neitunarvalds" forseta Íslands er óáreiđanlegur. Ef forsetinn ákveđur ađ "virđa ákvörđun Alţingis" í hvívetna er varnaglinn brotinn. Ef forsetinn lćtur sannfćrast um ágćti vonds málstađar meirihluta Alţingis er varnaglinn brotinn. Ef forsetinn er erlendis og stađgengill hans ólmur í ađ skrifa undir er varnaglinn brotinn. Ef forsetinn telur ađ embćtti forseta eigi bara ađ vera til skrauts er varnaglinn brotinn.

Á hinn bóginn getur varnaglinn líka orđiđ ađ bremsu eđa stíflu. Ef forsetinn er ólmur í ađ fá athygli getur varnaglinn orđiđ ađ stíflu. Ef forsetinn er eindreginn stuđningsmađur stjórnarandstöđunnar og hafnar öllu sem henni er ekki ţóknanleg er varnaglinn orđinn ađ stíflu. Ef forsetinn talar fyrir "beinu lýđrćđi" og "milliliđalausri ákvörđunartöku" og sendir öll stór mál í ţjóđaratkvćđagreiđslu er varnaglinn orđinn ađ stíflu. Ţjóđaratkvćđagreiđslur eru ágćtar en ţćr eru of dýrar og ţunglamalegar í fćribandalagasmíđi nútímans.

Góđur varnagli á ríkisvald í útţenslu er vandfundinn. Einn gćti samt veriđ viđhorf almennings. Ef almenningur hćttir ađ umbera sívaxandi ríkisvald, byrjar ađ efast um ágćti núverandi ríkisvalds, og fer jafnvel ađ hallast ađ stórkostlega minnkandi ríkisvaldi, ţá er hćtt viđ ađ ţrýstingur á stjórnmálamenn til ađ taka til í ríkisrekstrinum (ţrífa, henda og skera niđur) aukist.

Besti varnaglinn er fólginn í sterku og hávćru ađhaldi almennings. Almenningur á ađ krefjast ţess ađ stjórnmálamenn sjúgi loftiđ úr ríkisvaldinu. Almenningur á ađ hćtta ađ líta á ríkisvaldiđ sem stóra fóstru sem elur upp fullorđiđ fólk. Almenningur á ađ hrifsa til sín ţađ vald sem ríkisvaldiđ hefur tekiđ til sín međ valdi. Til dćmis valdiđ til ađ borđa sykrađ og litarefnaríkt Cocoa Puffs eđa sprauta sig međ heróini ef ţannig liggur á einhverjum.  

Ţetta er besti varnaglinn. Um leiđ er hann líka sá versti, ţví almenningur lćtur glepjast. Ţannig er ţađ bara. Vonandi er tilhneigingin ađ gleypa viđ áróđri ríkisvaldsins samt á undanhaldi.


mbl.is SUS vill halda í forsetann
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eins er sagan um varadekkiđ, ţađ verđur ađ halda ákveđnum ţrýstingi í ţví og varast ađ ţađ sé ekki loftlaust en fyrst og fremst hugsa hvađa tilgangi ţađ ţjónar.

Bullumsull (IP-tala skráđ) 6.2.2013 kl. 14:36

2 Smámynd: Geir Ágústsson

Vel mćlt.

Í Ţýskalandi er heilt dómstig sem sér um ţađ ađ halda aftur af löggjafanum af hann brýtur á stjórnarskránni. Er ţađ gott kerfi?

http://en.wikipedia.org/wiki/Basic_Law_for_the_Federal_Republic_of_Germany#Federal_Constitutional_Court

Ţví ţađ er nú ţannig ađ sumir hafa hreinlega efast um lögmćti ţess ađ t.d. ábyrgjast skuldbindingar á viđ Icesave.

Geir Ágústsson, 6.2.2013 kl. 14:42

3 identicon

Sćll.

Dómstólar eru oft ađ skipta sér ađ málum sem ţeim koma ekki viđ og yfirleitt arfalélegir. Ţađ er eitthvađ mikiđ ađ lögfrćđinámi hérlendis.

Frá 1937-1995 voru ekki ein einustu alríkislög í USA dćmd af hćstarétti landsins vera í trássi viđ stjórnarskrá ţess lands. Segir ţetta ekki ansi mikiđ?

Hve mörg lög hérlendis standast ekki stjórnarskrá okkar lands?

Hvernig stendur á ţví ţeir sem eru frá Evrópu mega koma hingađ og vinna  en ef menn eru annars stađar frá, t.d. USA eđa Kanada, er nánast útilokađ fyrir ţess lenda ađ setjast hér ađ? Er hér ekki veriđ ađ mismuna eftir uppruna og litarhćtti? Kannski ţurfa menn ađ vera lögfrćđimenntađir til ađ réttlćta svona dellu?

Međ forsetann, einhver varnagli er betri en enginn - hversu gallađur sem hann er.

Helgi (IP-tala skráđ) 6.2.2013 kl. 14:52

4 identicon

Stjórnarskrá íslendinga er ekki alţjóđleg, hún kveđur ađeins um mismunun ţegna landsins.

Samţykkt á EES samningnum var hins vegar skýrt brot á stjórnarskránni.

Bullumsull (IP-tala skráđ) 6.2.2013 kl. 15:13

5 identicon

Sćll Geir.

Tók mig tíma til ađ kynna mér Germany´s federal constitutional court.

Ekkert ákvćđi er í stjórnarskrá ţjóđverja um ţjóđaratkvćđagreiđslur eđa beint lýđrćđi nema ţá helst ef um er ađ rćđa stjórnarskrábreytingar.

Ţjóđverjar eiga sitt Icesave, nýlega gaf rétturinn grćna ljósiđ á ţátttöku ţjóđverja í ESM (European Stability Mechanism.) ađ upphćđ 190 billjóna evra.

Niđurstađan leiddi til umrćđu um ţjóđaratkvćđagreiđslur.

Ef ţjóđaratkvćđagreiđslur eru kostnađarsamar hvađ kostar ţá ađ halda út Stjórnarskrárétti?

Samkvćmt drögum ađ nýrri stjórnaskrá íslenska lýđveldisins ţá sýnist mér ađ ţingmenn geti sett mál lík ESM og icesave á fjárlög, en fjárlög eru undanţegin ţjóđaratkvćđagreiđslu samkvćmt drögum ađ nýrri stjórnarskrá.

Já, ţađ er margt ađ varast.

Bullumsull (IP-tala skráđ) 7.2.2013 kl. 01:03

6 Smámynd: Geir Ágústsson

Helgi, góđ ábending međ Bandaríkin. Stjórnarskráin ţar var viljandi skrifuđ stutt og skýr en samt er búiđ ađ gata hana eins og svissneskan ost. Núna sleppur ţar hvađ sem er í gegn.

Bullumsull, ég ţakka ţessar athugasemdir. Niđurstađan hlýtur ađ vera sú ađ ekkert kemur í stađ ađhalds almennings. Án ţess er hćgt ađ orđa hvađ sem er ţannig ađ stjórnmálamenn fái sínu framgengt, sama hvađ einhver stjórnarskrá segir eđa segir ekki.

Geir Ágústsson, 7.2.2013 kl. 08:17

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband