Óbreytt síðan í apríl

Í apríl sl. framkvæmdi MMR almenna, venjulega og ódýra skoðanakönnun um afstöðu fólks til meints frumvarps til nýrrar stjórnarskrár. Niðurstöður þeirrar skoðanakönnunar voru í meginatriðum svipaðar og þeirrar rándýru sem fór fram í gær. 

Hefðu menn ekki geta nýtt fjármagnið betur í eitthvað annað en þetta brölt? 

Annars held ég að flestir hafi hvorki lesið meint frumvarp né gildandi stjórnarskrá. En það er önnur saga.  


mbl.is Fjármálaráðherra: Niðurstaðan afgerandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæl.

Einhvers staðar sá ég að  1300 milljónir af peningum sem við ekki eigum hefðu farið í þetta mál allt saman.

Væri ekki nær að fara eftir stjórnarskránni áður en við breytum henni?

http://www.dv.is/frettir/2012/10/22/lagaprofessor-merkingarlaus-thjodarkvaedagreidsla/

Helgi (IP-tala skráð) 22.10.2012 kl. 08:23

2 Smámynd: Óskar Guðmundsson

Í skoðanakönnun þeirri er nú er afstaðin var fáum lagt mikið vald í hendur.

Þá á ég við það hvernig spurningarnar voru orðaðar.

Hefði spurning 3 ekki verið betur orðið t.d.: "villtu aðskilnað ríkis og kirkju?

Óskar Guðmundsson, 22.10.2012 kl. 13:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband