Áhætta af því að hafna Icesave-lögunum: Lítil

Eftir að hafa horft á viðtal við ritara EFTA-dómstólsins og erindi eftir Reimar Pétursson hrl. (sjá hvort tveggja hér) þá sýnist mér eftirfarandi vera hugsanleg röð atburða ef og þegar Íslendingar hafna Icesave-lögum Samfylkingarinnar 9. apríl næstkomandi:

  • EF EFTA-dómstóll dæmir Ísland brotlegt á EES-sammningum (á sama hátt og ESA hefur gefið út í áliti)
  • ... og EF ráðstafanir íslenska ríkisins til að koma í veg fyrir samskonar brot í framtíðinni í kjölfarið eru Bretum og Hollendingum ekki að skapi
  • ... og EF þeir ákveða í kjölfarið að höfða skaðabótamál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
  • ... og EF sá dómstóll telur brot íslenska ríkisins uppfylla allar hinar ströngu kröfur um bótaskyldu
  • ... og EF þrotabú Landsbankans á þessum tíma hrekkur ekki upp í hugsanlegar bætu

...þá þarf kannski að leggja eitthvað á herðar íslenskra skattgreiðenda vegna Icesave, en í íslenskum krónum og á hagstæðustu vöxtum sem völ er á auk þriðjungs afsláttar af þeim.

En annars ekki, nema Icesave-lögin verði samþykkt.

Þetta eru mörg og stór "EF" og þau þurfa öll að fara á versta veg til að svo mikið sem ein íslensk króna lendi á herðum íslenskra skattgreiðenda.

Svo vilja sumir "drífa málið af" með 670 milljarða stöðutöku á gjaldeyrismörkuðum með hina "handónýtu" og sveiflukenndu íslensku krónu! Jahérna, á bak við slíka skoðun getur ekki legið annað en sterkt pólitískt hagsmunamat (sem fellur fullkomlega saman við ESB-stefnu Samfylkingarinnar).

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband