Núsitjandi ríkisstjórn er ábyrg

Lífskjör Íslendinga eru núna á rjúkandi niðurleið. Það blasti við á meðan hagkerfið var að hrynja að lífskjör mundu versna og jafnvel töluvert hjá mörgum, en það blasti sömuleiðis við að Íslendingar voru að eyða um efni fram, en höfðu góða möguleika á að vinna sig úr því (menntun landsmanna, viðskiptatækifæri, auðlindir, arðbær sjávarútvegur og fleira slíkt hvarf ekki í hruninu).

Best hefði verið að lækka útgjöld hins opinbera niður að tekjum, vinda ofan af allskyns óþarfa sem viðgengst á Íslandi, jafnvel nota tækifærið og hætta ríkisstuðningi á landbúnaði, listum og ýmsu öðru og byggja upp frá örlítið traustari grunni. Tekjur Íslands hrundu ekki mikið meira aftur en til ca. 2004, og þá var svo sannarlega góðæri á Íslandi (sem byggðist ekki á mikilli skuldsetningu).

En þá tók við ríkisstjórn sem hefur alla sína starfsdaga gert slæmt ástand verra. Ríkisstjórnin ber fulla  ábyrgð á því að lífskjör Íslendinga eru á niðurleið en ekki uppleið. "Þetta var þarseinustu ríkisstjórn að kenna" er þula sem var hugsanlega hægt að þylja í fyrra, en ekki lengur. 


mbl.is Ísland lækkar á lífskjaralista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vissulega má vel segja að þessi ríkisstjórn sé ábyrg fyrir hinu og þessu, ömurleg að öllu leiti;
Ekkert tekur samt ábyrgð fyrri ríkisstjórnar í burtu; Sú vísa verður aldrei of oft kveðin

doctore (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 11:59

2 Smámynd: Geir Ágústsson

doctore,

Fyrri ríkisstjórnir voru skipstjórar sem sigldu skipinu á grunnsævi þar sem það strandaði og fór eitthvað á hliðina. Satt og rétt og það var þá og úff eins gott að þeim skipstjórum var komið frá, eða svo er mér sagt.

Núverandi ríkisstjórn tók við skipinu og byrjaði að bora holur á kjöl þess. Á endan sekkur skipið, á ábyrgð hennar.

Geir Ágústsson, 4.11.2010 kl. 12:14

3 identicon

Bæði fyrri stjórn og þessi stjórn eiga sök á þessu. Svartsýni er samt einum of mikil meðal fólks á þessu landi. Gæti trúað að mikill hluti lækkunar hér á landi sé vegna lækkunar á GDP, sem er hluti af þessari vísitölu. Við verðum fljót að rísa upp þennan lista aftur þegar fólk fer að líta fram á veginn í staðinn fyrir að vera föst í einhverju fortíðarvæli.

Bragi (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 12:25

4 Smámynd: Geir Ágústsson

Bragi,

Efnahagsstefnan er nánast eins og kokkabók þess sem viljandi og markvisst vill grafa undan hagkerfi og vaxtarmöguleikum þess. Eða nefndu mér eitthvað sem hefur með vilja verið framkvæmt af stjórnvöldum til að búa í haginn fyrir batnandi tíð?

Skattahækkanirnar?

Skuldasöfnunin?

Bygging tónlistarferlíkisins í Reykjavíkurhöfn?

Geir Ágústsson, 4.11.2010 kl. 12:27

5 identicon

Ég get alveg fallist á það að núverandi ríkisstjórnin hafi ekki staðið sig vel. Eins og sú síðasta. Báðar ríkisstjórnir eiga þátt í því að við dettum niður þennan lista.

Það breytir samt sem áður ekki því að svartsýni er of mikil á þessu landi.

Bragi (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 12:46

6 identicon

Í tíð "vinstristjórnarinnar" hefur fátækt aukist til muna og kjör lítilmagnans hríð versnað, auk þess sem þessari stétt lítilmagnanum hefur fjölgað sem aldrei fyrr. Lítil börn róta nú í ruslinu í leit að mat og gamalmenni eru borin út á götu, og við erum orðin eina ríkið í okkar heimshluta sem neitar sumum ungmennum um skólagöngu, þó þau hafi náð öllum samræmduprófum, út af niðurskurði í menntakerfinu. Á sama tíma er hvergi skorið niður í yfirbyggingunni og milljörðunum sem hefði verið hægt að eyða í að laga mennta- og húsnæðismál og hjálpa bágstöddum öllum kastað á bálið í Brussel. Þetta hyski er ekki vinstrimenn. Ég er vinstrimaður. Vinstrimenn eru lýðræðislega hugsandi fólk sem sólundar ekki fé þjóðarinnar í einkahobbý sín, esb þruglið, meðan börnin róta í ruslatunnunum, heldur virðir jafnrétti manna og vilja fólksins og reynir að tryggja jöfn lífskjör allra. Þessi ríkisstjórn er aftur á móti tilbúin að brjóta lög og reglur í auðvaldsdýrkun sinni, í því skyni að sleikja sig upp við auðvaldið á kostnað almennings. Hæstaréttardómar eru jafnvel hunsaðir, svo sem gerðist í tilfelli Lýsingar, en dómurinn sem þá féll hefði getað forðað þúsundum frá gjaldþroti og vonarvöl. En ríkisstjórnin sýndi með því að hunsa þann dóm, nokkuð sem er víða ólöglegt og hefði eitt og sér nægt sem brottrekstrarsök fyrir ríkisstjórnina, þar sem þrískipt vald er tryggt með lögum í stjórnarskrá, sitt rétta eðli og fyrir hvern hún starfar í raun og veru. Annað hvort voru þau aldrei vinstrimenn, heldur bara Trójuhestar, eða þá eru þau pólítískar mellur sem einhver ill öfl borga undir borðið. Aðrar skýringar standast ekki nánari athugun. Síst af öllu gjammið í nýju trúarbrögðunum hans Steingríms sem hafa gert Davíð Oddsson að allsherjar grýlu og djöfli sem allt sem miður hefur farið í veraldarsögunni er að kenna, og gerir hans menn stikkfría frá öllu og þeir geta jafnvel notað tilvist Davíðs Oddssonar sem afsökun til að fremja hvaða glæp sem er "Skrattinn freistaði mín" = "Davíð neyddi mig til þess", en einungis einfeldningar taka svona bókstafstrú og óráðshjal trúanlegt, burtséð frá hvað manni þykir persónilega margt miður í fari pólítíkur Davíðs Oddsonar. Sannleikurinn blasir við. Þau eru kannski lýðræðislega kjörin, en það var Hitler nú líka. Lýðræðissinnar eru þau ekki, það hafa þau sýnt með að marg brjóta á fólkinu í landinu, jafnvel í trássi við Hæstarétt, sem þau óvirða eins og þeim sýnist. Hvort sem þau eru að þiggja mútur eða annað kemur til, þá eiga þau ekki skilið að sitja þarna lengi. Sagan sýnir að það að láta fasista og elítista sem óvirða sitt eigið fólk sitja í skjóli "lýðræðis" er stórhættulegt og veit ekki á gott. Við höfum valið, annað hvort kveðjum við land vort og þjóð bless, frelsi vor og mannréttindi, kjör og auðlindir......eða ríkisstjórn þessa. Við höfum þetta val ekki mikið lengur. Tíminn líður hratt að úrslita stund. Láttu ekki þitt eftir liggja http://www.utanthingsstjorn.is

Jón Sigurðsson (IP-tala skráð) 5.11.2010 kl. 01:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband