Skattar MUNU hækka

Heldur einhver að ríkisstjórnin muni ekki hækka skatta? Athugum orðalag AGS samkvæmt blaðamanni (feitletrun mín):

Gangi þetta eftir myndast slaki upp á 20 milljarða króna, sem dregur úr þörfinni á auknum tekjum ríkissjóðs gegnum skattheimtu.

 Orðalagið "dregur úr þörfinni" er hvorki "eyðir þörfinni" né "gerir þörfina enga". Það er því gefið í skyn að skattar þurfi að hækka, en bara ekki eins mikið og áður. Hér finnast heldur engin tilmæli um að ríkið eigi að draga útgjöld enn meira saman til að tryggja hallaleysi á ríkissjóði (að "frádregnum vaxtagreiðslum", sem er auðvitað hlægileg reikningskúnst því vextir eru útgjöld eins og önnur þótt þau gagnist engum nema lánadrottnum hins skuldsetta ríkissjóðs).

En það skiptir engu máli hvernig afkoma ríkissjóðs er. Fyrir skattahækkunum ríkisstjórnarinnar eru ekki bara efnahagsleg rök, og ekki einu sinni fyrst og fremst efnahagsleg rök. Skattahækkanirnar eru drifnar áfram af pólitískri hugsjón ríkisstjórnarinnar. Þeir "ríku" (sem eru nokkurn veginn allir sem eru ekki á lágmarkslaunum eða opinberri framfærslu eða eru háttsettir opinberir embættismenn) eiga að fá að blæða, og gildir þá einu hvort ríkissjóður er rekinn með 100 milljarða halla eða "afgangi". Skattahækkanir fá að standa.

Fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár, sem senn verður afhjúpað, mun innihalda langan lista af skattahækkunum. Þær verða "rökstuddar" með tilvísun í afkomu ríkissjóðs, en eru í raun drifnar áfram af pólitískum hugsjónum. Þær koma því, sama hvað.


mbl.is Skattahækkanir óþarfar ef svo fer fram sem horfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Skattleggja bankana og afturkalla hækkanir á nauðsynjum !

Guðmundur Ásgeirsson, 20.8.2010 kl. 10:20

2 identicon

Nágrímur sendi beiðni til AGS um að þeir settu fram hækkanir á sköttum.

Svokölluð "óskuð niðurstaða".

Nú mun í fyrsta sinn horfa fram í niðurskurð hjá hin opinbera (ég á eftir að sjá það gerast í raun til að trúa því) OG skattahækkunum.

Nágrímur og Handriðið ætla að tröllríða þjóðini eða eins og segir í texta eftir Stormsker "sem bakpoki hann á þeim hékk"...

Óskar Guðmundsson (IP-tala skráð) 20.8.2010 kl. 10:21

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Eins og ég hef áður sagt þá stefnum við beina leið í þrot!

Sigurður Haraldsson, 20.8.2010 kl. 12:09

4 identicon

Sæll.

Hjá ríkisstjórninni veit önnur höndin ekki hvað hin gerir. Önnur höndin sker niður á meðn hin eykur ríkisútgjöldin.

Embætti umboðsmanns skuldara er dæmi um þetta, hvað skyldi það nú kosta? Svo kostar nú eitthvað að kyngreina fjárlögin og eitthvað kosta nú allar þessar stöður hjá ríkinu sem ráðið hefur verið í tímabundið án auglýsingar! Svo kostar þetta ESB (þar sem vitað er hvað kemur út úr þeim "samningum") ævintýri Sf pening sem betur væri varið í t.d. LSH.

Ætli við eigum ekki bara skilið það sem við kusum yfir okkur? Ég spyr þó: Hvar eru þingmenn Sjálfstæðisflokks? Frá þeim hefur vart heyrst hósti né stunda vegna nokkurs máls! Hvað veldur því að þeir þegja þunni hljóði? Til hvers halda þeir að þeir séu á þingi? Þarf að skipta þessu liði út og fá á þing Sjálfstæðismenn sem þora að hjóla í þetta vinstra lið sem er að setja hér allt á hliðina? Ég held að flokkurinn gæti hæglega verið kominn með yfir 40% fylgi ef þingmenn þyrðu að láta að sér kveða og reka þvæluna ofan í stjórnarsinna.

Jon (IP-tala skráð) 21.8.2010 kl. 23:17

5 Smámynd: Geir Ágústsson

Jon,

Hjartanlega sammála!

Geir Ágústsson, 22.8.2010 kl. 01:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband